u/Hphilmarsson

Ókostir að vera með aukin ökuréttindi?

Ég er að skoða að taka öll aukin ökuréttindi, D, C, CE og B-far. Aðalástæðan er einfaldlega sú að mig langar til þess. Ég er ekki að fara í þetta til að gerast vörubílstjóri og keyra gáma eða rútur á milli landshluta, en þessi réttindi gætu nýst mér að einhverju leyti í mínum störfum.

Ég veit að þetta er dýrt, en ég mun sennilega ekki þurfa að greiða þetta sjálfur. Stéttarfélagið mun greiða stóran hluta kostnaðarins og auk þess get ég fengið námsstyrk sem kemur á móti.

Mig langar að vita hverjir eru ókostir þess að vera með aukin ökuréttindi?

reddit.com
u/Hphilmarsson — 1 day ago