▲ 36 r/Iceland
Valheim á íslensku
Ég hef verið að spila nýjustu uppfærsluna af Valheim eins og trúarbrögð seinustu vikur. Það er hægt að spila leikinn á íslensku, sem þeir kalla Samfélagsþýðingu (e. Community translation), sem ég geri ráð fyrir að þýði sjálfboðavinnu.
Ég veit að einhverjir nördarnir sem taka að sér að gera svona frítt eru örugglega líka hér.
Sem risa nörd sjálfur langar mig rosalega til að bæta við óþýdda textanum úr nýjustu uppfærslunni, og laga eina og eina stafsetningavillu sem ég sé meðan ég spila leikinn. Getur einhver komið mér inn í þýðingarskjalið?
u/yrkill — 4 days ago