Ísland verður að uppfæra lögin um rafhjól/rafmagnshlaupahjól
Er pínu pirraður.
Löggan var að hafa afskipti af mér fyrir utan húsið mitt, afþví ég var að fara á ólöglegum hraða. Ég var á undir 40 á götu með 50 í hámarkshraða, ég gaf stefnuljós og fylgdi öllum umferðarlögum öðrum en það að hlaupahjól megi ekki fara hraðar en 25.
Þeir klárlega ætluðu að gera hjólið mitt upptækt þangað til ég benti þeim á að hjolið mitt er eldra en þessar reglugerðir, og það hefur ekkert verið átt við þetta hjól (það hefur ekki verið klippt á neinn vír eða neitt svoleiðis, og þetta hjól var keypt löglega í íslenskri búð)
Það er fokkin böggandi hvað við (rafhjóla fólk) bara fáum ekki að fylgja lögum. Annaðhvort erum við á gangstéttunum, þar sem það meikar fullkomin sense að takmarka hraða við 25 og við sköpum áhættu fyrir gangandi umferð ef við förum hraðar, eða við erum á götunni og fylgjum (hraðanum á) hinni umferðinni á fullkomlega öruggan hátt en erum orðin glæpamenn afþví að íslenska ríkið ákveður að gera greinamun á rafhjólum og skellinöðrum (sem ég BTW hef réttindi til að keyra, og má keyra upp að 45kmph á götunum). Rafhjól eru bæði umhverfisvænni og og ódýrari í rekstri en skellinaðra. Bara fokkin leyfið mér að skrá hjólið mitt sem skellinöðru og synchronise-a hraðann minn við umferðina á 50 (eða slower) götum. Það er alveg jafn hættulegt að keyra svona þung og kraftmikil hjól á 25 kílómetra hraða á götum þar sem umferðin er á 50 eins og það er að keyra þau hraðar en 25 á gangstéttum.
Danmörk er með rökréttari reglur, þar einfaldlega ÞARFTU að skrá og tryggja svona hjól (bæði hlutir sem mig LANGAR að gera), og þú ÁTT að vera á götunum en þú MÁTT keyra á hjólastígum sem liggja meðfram hraðbrautum.